157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:11]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar að halda áfram vegna þess að í þeirri samgönguáætlun sem hæstv. ráðherra hefur horfið frá, þ.e. þeim göngum sem var búið að samþykkja að yrði farið í — og nú er búið að setja Fljótagöngin þar framar, sem eru líka mikilvæg.

Mig langar að spyrja þingmanninn, vegna þess að hún kom svolítið inn á hverju sé þá að treysta í sinni ræðu: Er hægt að treysta því að þessi áætlun sem nú er verið að setja fram standist? Hæstv. innviðaráðherra verður væntanlega ekki eilífur í sínu embætti. Ef það kemur nýr ráðherra og ný áætlun, getur fólk treyst því að þessi áætlun, sem nú hefur verið sett fram, muni halda miðað við það sem við vitum í dag, að ráðherra taldi sig ekki bundinn af fyrri áætlunum?