samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir seinna andsvar og þessar góðu spurningar. Varðandi stefnur Alþingis þá er ég sammála því; það er verið að samþykkja hérna stefnur og það er náttúrlega bara ólíðandi að ekki sé farið eftir því sem er samþykkt samhljóða hér á Alþingi. Varðandi þetta innviðafélag. Það fyrsta sem ég hugsa er að Öxi átti í rauninni að fara í svona PPP-verkefni sem er álíka, en það stoppaði og gerðist ekki neitt. Þannig að ég er ansi hrædd við þetta. Ég er til í allt fjármagn og svona en byggt á því hvernig innviðafélagið er sett upp og að það eru vankantar á þessu þá er ég hrædd um að verið sé að gefa okkur öllum von um allt land sem verði ekki hægt að standa við. Það er bara þannig. Og talandi um Isavia og flugvöllinn og fleira í Keflavík, þetta er eitthvað sem þarf virkilega að skoða. Við þurfum meira fjármagn í þessa velli. Varðandi Egilsstaðaflugvöll og tengt Isavia þá er gjaldskylda á Egilsstaðaflugvelli, á Egilsstöðum. Þar þurfum við að borga gjald til að komast til Reykjavíkur og sækja alla sérhæfða þjónustu en við fáum ekki einu sinni frían tímaramma til þess.