samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og get tekið undir a.m.k. ósk þess efnis að það séu betri tímar í vændum í Reykjavíkurborg þótt ég hafi nú lýst furðu minni á þeirri nálgun sem hefur orðið ofan á hjá Sjálfstæðisflokknum í meirihlutaviðræðum þar. En það er önnur saga sem ég ætla síst að fara að krefja hv. þingmann svara um. Ég hefði áhuga á að ræða t.d. hverfi hv. þingmanns, Grafarvoginn. Ég er sammála því að þegar við hugsum um samgöngumál í víðara samhengi þá liggja skipulagsmál þeim til grundvallar og hvernig við skipuleggjum byggð og þar með hverjar ferðaþarfir íbúar verða og að ferðaþarfirnar séu ekki þannig stilltar af að umferðin verði óbærileg þegar allir eru að fara í sömu átt á sama tíma o.s.frv. Hvernig er það í hverfi hv. þingmanns, hver eru skrefin í átt að sjálfbærari byggð sem getur séð betur um sig sjálfa? Nú bý ég í allt öðrum hluta borgarinnar, Vesturbænum, sem er að mörgu leyti sjálfbær en ekki að öllu leyti. (Forseti hringir.) Ég hefði áhuga á að vita um byggð sem er sennilega af öðrum toga og annarrar gerðar. Hverjar eru þarfirnar á þessu sviði?