157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:24]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég tek undir þetta og af því að hv. þingmaður nefnir Fossvogsbrúna sérstaklega þá nefndi ég hana áðan í samanburði við Sundabrautina þar sem ég viðraði áhyggjur mínar af því að það myndi ráða för eða yrði einhver ákvörðunarástæða varðandi lagningu Sundabrautar að það væri hægt að labba þar yfir, labba Sundabrautina. Hvað Fossvogsbrúna varðar þá hef ég nú haft mestar áhyggjur af því og fleiri sem hér sitja hvað hún muni kosta. Mér finnst það auðvitað óforsvaranlegt að það sé verið að fara að spandera ríkisfé og skattfé í ákveðna hönnun eða útfærslu sem svarar ekki kostnaði. Mér hefur virst Kópavogsbúum hugnast vel þessi leið, þessi hjólaútfærsla. Mér er svona tiltölulega fyrirmunað að skilja þetta. Auðvitað hefði maður haldið að það væri nærtækast að allir samgöngumátar kæmust þarna yfir brúna, það væri besta útfærslan, besta nýtingin á brúnni og fjármununum. (Forseti hringir.) En hv. þm. Snorri Másson fór aðeins yfir það í andsvari sínu áðan að við erum svolítið innstillt á það að vera að þjóna tilteknum hópi samfélagsins (Forseti hringir.) sem er miklu minni heldur en sá sem þarf á úrbótum að halda. Þar langar mig að nefna sérstaklega þá sem eru gangandi og hjólandi, þetta er miklu smærri hópur en oft er látið.