samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Einmitt tæknibyltingar og breytingar, það er gaman að koma aðeins inn á það þótt tíminn sé afar naumur. Hv. þingmaður kom dálítið vel inn á það einmitt í ræðu sinni, þingsályktunartillöguna sem við erum saman á um sjálfkeyrandi bíla og að við á Íslandi undirbúum okkur fyrir þá byltingu. Ég held satt að segja, og það væri gaman að fá viðhorf þingmannsins til þess, að við séum að verða dálítið langt á eftir mörgum Evrópuþjóðum. Þær eru að búa sig undir þetta, eru búnar að því og síðast í morgun bárust fréttir af því að Danir séu búnir að samþykkja sjálfstýringarbúnaðinn frá Teslu. Við erum að mínu mati að dragast dálítið aftur úr. Við viljum ekki verða langt á eftir nágrannaþjóðunum í þeim efnum.
En örstutt, af því að tíminn hleypur frá okkur: Hefur þingmaðurinn velt fyrir sér hvaða áhrif sjálfakandi bílar, einkabílar sem og almenningstæki, gætu haft á notkun almenningssamgangna sem okkur er tíðrætt um?