samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Kannski örstutt áður en ég kem að því sem ég hugðist nú fjalla um í þessari ræðu, svona í ljósi samskipta minna hér við hv. þm. Þórarin Inga Pétursson: Ég fagna því alltaf þegar menn vilja ræða þessi málefni. Það er rétt að halda því til haga að það hefur verið gefið út geysilega öflugt kort af reiðleiðum um Ísland. Svo er rétt að hafa í huga líka, herra forseti, að þar sem upp hefur komið ágreiningur, af því að hv. þingmaður ræddi hér um einkalönd, uppgróin lönd, ræktarlönd og slík mál hafa unnist fyrir dómstólum, að þar sem hefur verið lokað meðfram vatnsföllum annars vegar og svo merktum gömlum þjóðleiðum hins vegar er óheimilt að loka nema með — ég man ekki nákvæmlega orðalagið, herra forseti, en það var eitthvað á þá leið — tiltölulega aðgengilegum hliðum.
Ég vildi hins vegar gera að umtalsefni hér, herra forseti, af því við erum aftur farin að ræða samgönguáætlun og ég var varla byrjaður á því að fjalla um hin ýmsu svæði innan Norðvesturkjördæmis, rétt stiklaði yfir helstu verkefnin í nánast stikkorðastíl, þannig að ég held að það sé ástæða til að gera í það minnsta sumum þeirra örlítið ítarlegri skil. Ég vildi gjarnan grípa niður í umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi þar sem verið er að fjalla um annars vegar Suðurfirði, Suðurfjarðarveginn, og svo hins vegar Öxi. Þar segir, með leyfi forseta:
„Aðrir hlutar samgönguáætlunarinnar valda ekki síður vonbrigðum. Vegaframkvæmdir í fjórðungnum eru að mestu leyti á síðari hluta áætlunarinnar og tvær brýnar vegabætur sem íbúar hafa kallað eftir árum saman, Suðurfjarðavegur og Öxi, hefjast ekki af alvöru fyrr en 2031. Einn hættulegasti vegakafli á þjóðvegi eitt, hinn ríflega 30 km langi Suðurfjarðarvegur, er dæmdur til að bíða í fimm ár til viðbótar. Tekur SSA undir með umsögn Fjarðabyggðar þar sem kallað er eftir því að umbætur á veginum verði hafnar tafarlaust.“
Það hefur reyndar orðið örlítil breyting á þessu frá því að þessi texti var saminn en ekki þannig að hann standi ekki efnislega fyrir sínu enn þá. Það er um þetta að segja m.a., herra forseti, að þarna eru hrunvarnir á Suðurfjarðaveginum sem þola enga bið. Ég held að allir sem hafa kynnt sér aðstæður séu sammála um það.
Síðan hefur margoft verið vitnað til, þótt það komi ekki fram í þessari umsögn hér, herra forseti, úttektar EuroRAP á sínum tíma um ástand þjóðvegakerfisins sem sýndi að Suðurfjarðarvegur var álitinn einn hættulegasti vegkafli Íslands. Það er einmitt vegurinn, herra forseti, sem m.a. er stólað á til að koma öllum þeim þungaflutningum, öllum þeim verðmætum sem svæðið er að skapa á markað. Við erum að beina stórum hluta þessarar verðmætaskapandi þungaumferðar einmitt inn á veginn sem er álitinn einn sá hættulegasti á landinu. Allir sem hafa ekið þennan veg geta sett sig í þau spor að vera t.d. með fulllestaðan vörubíl í vetraraðstæðum, til að mynda í hálku, og mæta öðru slíku ökutæki. Í þessum geira er stundum sagt að það séu ákveðnir vegkaflar sem kosti marga spegla. Þarna er vegurinn einfaldlega svo mjór að hann býður ekki upp á að slík ökutæki geti mæst úr gagnstæðri stefnu með tiltölulega öruggum hætti og þess vegna hafa farið þarna allmargir speglar. Þetta þolir bara enga bið. Þó að hluti af Suðurfjarðaveginum sé á áætluninni þá er stærstur hlutinn, eins og hefur ítrekað komið fram varðandi aðrar framkvæmdir í Norðvesturkjördæmi, mjög afturþungur sem þýðir að það er verið að horfa mjög langt fram í tímann. Það væri kannski ástæða og efni í aðra ræðu, herra forseti, að taka fyrir þessa umræðu um innviðafélagið og hið meinta svigrúm sem það á að skapa handa framkvæmdum annars staðar á landinu. En ég verð að koma að því síðar, herra forseti, vegna tímans og óska eftir því að vera settur aftur á mælendaskrá.