samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína ræðu og sömuleiðis býð ég hv. þingmann velkominn til þings. Nú er hún ekki hér sem varaþingmaður heldur sem fullgildur þingmaður, eins og við getum orðað það. Ræða hennar beindist fyrst og fremst að hennar kjördæmi sem eðlilegt er og mig langar í fyrra andsvari að ræða um Herjólf og samgöngur milli lands og Eyja og Landeyjahöfn. Landeyjahöfn hefur verið lengi í umræðunni varðandi þá ágalla sem eru á henni sem snúa að sandburði og síðan þarf náttúrlega reglulega að dýpka sömuleiðis til þess að Herjólfur geti komið þarna að. Sömuleiðis höfum við lengi verið í vandræðum þegar Herjólfur bilar; þá þarf að kalla aðra ferju til og nú er sú staða uppi að búið er að kalla Breiðafjarðarferjuna Baldur til starfa til að leysa Herjólf af. En hvernig, svona til framtíðar litið, sér hv. þingmaður það fyrir sér að við getum boðið Eyjamönnum og gestum sem sækja Eyjarnar heim upp á svona framtíðarmúsík eða skipulag þegar kemur að því að reyna að tryggja sem öflugastar samgöngur milli lands og Eyja? Ég geri mér grein fyrir því að einfaldasta og þægilegasta leiðin til að svara þessum spurningum væri að grafa göng en ég held að það sé ekki alveg svo sem í náinni framtíð. En við þurfum að horfa til þeirra ára sem það liggur fyrir að við þurfum að styðjast við ferjusiglingar milli lands og Eyja.