forsendur fjárlaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið sem ég vona að hafi varpað ljósi á málið fyrir einhverja ykkar, en ekki var mikið hald í því fyrir þann sem hér stendur. Ég veit að spátíminn er annar og ég veit að við erum að nota spá Seðlabankans og ég veit að það geta orðið breytingar á leiðinni og ég veit að það munu verða breytingar á leiðinni. Þetta er ekkert nýtt. Þetta þekkjum við öll sem höfum verið í fjárlaganefnd. Það er ekkert nýtt undir sólinni þarna. Það sem er nýtt undir sólinni og það sem ég er að gagnrýna, virðulegur forseti, er einfaldlega það að við erum að fara að búa til fjárlög hér og eins og hæstv. forsætisráðherra sagði: Fjármálaáætlun þarf að vera rétt vegna þess að fjárlög byggja á fjármálaáætluninni. Fjárlögin sem hæstv. forsætisráðherra var að vísa í að vinna væri hafin við byggja samkvæmt lögum um opinber fjármál á fjármálaáætlun. Hún er röng, hún hefur ekki verið uppfærð. Það er gagnrýnin og ég hvet hæstv. forsætisráðherra til að hlusta vegna þess að það er algjörlega ljóst að hv. þm. Kristrún Frostadóttir í minni hluta í fjárlaganefnd hefði staðið í nákvæmlega sömu sporum og sá sem hér stendur í dag.