157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

breytingar í hagvaxtarspá.

[10:55]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Það stefnir í að þetta verða sögulegur dagur. En bara til að hafa þessa hluti alveg á hreinu þá ætla ég að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra út í málið. Ég hlustaði auðvitað á hæstv. forsætisráðherra, ég hlustaði á hana. Og það sem hæstv. forsætisráðherra var að segja er: Við vitum að forsendur fjármálaáætlunar eru brostnar. Hagvöxtur er minni, atvinnuleysi er meira og sparnaðurinn sem við gerðum ráð fyrir í fjármálaáætlun verður minni en við ætluðum. Þannig að forsendurnar eru farnar. Og meiri hluti fjárlaganefndar skrifar þetta út. Eins og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson benti á og allir geta lesið, þ.e. í lögum um opinber fjármál, þá byggjum við fjárlög á fjármálaáætlun. Það er algerlega skýrt, og lög um opinber fjármál stafa það eðlilega út, að við eigum að byggja allt á bestu mögulegu upplýsingum. Nema hvað? Það á að vera gagnsæi í þessu. Við breyttum þessum lögum til þess að vanda til verka. Ég ætla bara að fá það algerlega á hreint: Er það svo að ríkisstjórnarmeirihlutinn komi fram fyrir þing og þjóð og segi: Fjármálaáætlunin sem við vorum með — forsendurnar eru farnar þannig að það er ekkert að marka þetta? En við ætlum ekki að reikna það upp, við ætlum bara að láta líta út fyrir að þetta skipti engu máli. Er það svo? Ég bara trúi því varla.

Ég vek athygli á því að bæði forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra eru hagfræðingar og menn tala stundum um að þeir hafi slíka þekkingu á þessum málum að hlutirnir verði þá í betra lagi. Ég trúi því ekki fyrr en hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra staðfestir það að forsendurnar séu brostnar og þær verði ekki endurreiknaðar (Forseti hringir.) og fjármálaáætlun verði ekki uppfærð. Ég ætla að heyra hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra staðfesta það áður en við höldum lengra í þessu máli.