157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

breytingar í hagvaxtarspá.

[10:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurninguna. Eins og fram kom í máli forsætisráðherra þá er ekki mögulegt að uppfæra fjármálaáætlun á grundvelli þeirrar spár sem Seðlabankinn gaf út nýverið. Það var ekki gert ráð fyrir því en það er líka þannig að við þá breytingu að styðjast við spá Seðlabankans frekar en spá Hagstofunnar þurfti að gera umtalsverðar breytingar. Spá Seðlabankans er einungis til þriggja ára. Það þýddi að það þurfti að framspá henni og sú vinna fór auðvitað strax af stað en hún tekur tíma. Síðan þarf að spá tekjum á grundvelli áætlunarinnar og að lokum að spá um gjaldaþróun á grundvelli áætlunarinnar og það er ekki raunhæft að það náist.

Varðandi það hvort forsendurnar séu brostnar eða ekki þá held ég að hv. þingmenn þurfi að skoða þessar áætlanir og hvernig þær þróast og hversu stórar breytingarnar eru milli ólíkra endurtekninga áætlunarinnar. Það er ekki meiri breyting sem er að eiga sér stað milli spáa Seðlabankans núna en hefur verið að jafnaði. Að jafnaði, eins og hæstv. forsætisráðherra kom inn á hér áðan, eru breytingarnar einhverjar. Það breytast eiginlega allar tölur í áætluninni en breytingarnar eru óverulegar. Ég vil þess vegna segja að það að halda því fram að forsendur séu einhvern veginn meira brostnar núna en þær eru bara í hvert einasta skipti sem nýjar hagspár koma fram kemur mér mjög spánskt fyrir sjónir.