breytingar í hagvaxtarspá.
Virðulegi forseti. Þá er þetta bara staðfest. Menn geta þvælt um þetta til og frá en breytingin er alveg skýr: Það liggur fyrir að sparnaður verður minni. Það liggur fyrir að atvinnuleysi verður meira, það kostar. Það liggur fyrir að hagvöxtur verður minni, það þýðir minni tekjur. Og það liggur líka fyrir að það er alveg örugglega — þetta verkefni er ekki af þeirri stærðargráðu að það sé ekki hægt að uppfæra fjármálaáætlun. Það sem hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra eru að segja er: Við erum ekkert að gera með lög um opinber fjármál. Það er bara það sem þau eru að segja. Það hefur verið boðið upp á það af hálfu stjórnarandstöðunnar að við hittumst hérna í ágúst ef þau þurfa svona mikinn tíma til að uppfæra þetta. Þeim hefði náttúrlega verið í lófa lagið að gera það ef það hefði verið ástæða til þess. En ég vek bara athygli á því að hér er verið að ganga frá fjármálaáætlun. Meiri hluti fjárlaganefndar er búinn að viðurkenna hið augljósa, að forsendur eru brostnar og (Forseti hringir.) ríkisstjórnin setur kíkinn fyrir blinda augað og gefur ekkert fyrir allar þær breytingar sem voru gerðar til þess að vanda verklag við opinber fjármál.