157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:16]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp í annarri ræðu minni um samgönguáætlun. Þetta er afskaplega stórt mál og mjög mikilvægt að geta kvatt sér hljóðs oftar og farið yfir það sem komst ekki fyrir í fyrri ræðu hjá mér. Þetta er ræða númer tvö. Andsvörin sem ég fékk við þessari fyrri ræðu minni ýttu mér aðeins í frekari hugleiðingar um ýmislegt sem tengist samgönguáætlun. Mig langar til að bregðast aðeins við einu andsvarinu sem snerist um mögulegt fjármagn sem gæti komið inn vegna innviðafélagsins og hvort ég hefði trú á þeirri aðferðafræði og hvort hún myndi gagnast Austurlandi eða mínu kjördæmi. En eins og ég sagði líka í fyrri ræðu minni þá viðurkenni ég það að ég er aðeins skeptísk vegna fyrri reynslu frá Austurlandi. En auðvitað vona ég innilega að innviðafélagið muni virka og hér finn ég að það er mikil trú á því og einmitt lögð áhersla á það að sú aðferðafræði sé viðhöfð í Færeyjum. Það spyrja margir: Af hverju geta Færeyingar borað og borað en ekki við? Það er alltaf verið að bora göng þar og við öfundum þá auðvitað af því. Það er alls ekki verið að bora göng hér á landi þrátt fyrir að það séu náttúrlega göng tilbúin til útboðs. En eins og ég hef orðað hér áður þá voru þau göng sett til hliðar sem eru tilbúin til útboðs og við gætum farið að framkvæma. Sú aðferðafræði að setja göng til hliðar sem heilt bæjarfélag og við hér á landi höfum beðið eftir að fari af stað með er afar slæm og ber alls ekki vott um vilja til að drífa í gang jarðgangaframkvæmdir. Okkur finnst það auðvitað.

Varðandi innviðafélagið, af því að ég var að tala um það, þá hef ég áhyggjur af því að það hafi ekki verið hugað kannski að öllu sem tengist innviðafélaginu eftir því sem ég hlusta á áhyggjur annarra þingmanna af framkvæmdinni. Ég er náttúrlega varaþingmaður og kem inn einungis í viku, búin að vera hér í örfáa daga og maður reynir að setja sig vel inn í málin. En þessar áhyggjur og hugleiðingar sem hafa komið fram ýta undir efann um að þetta heppnist nógu vel. Ég vona auðvitað innilega að þetta muni heppnast. Það verður náttúrlega að vanda vel til verka og ég vona að brugðist verði við þeim athugasemdum sem hafa komið fram frá þeim þingmönnum sem sitja hér á Alþingi, þeir eru náttúrlega í nefndarstörfum og eru búnir að setja sig vel inn í málin og auðvitað önnur mál sem liggja fyrir þinginu.

Fyrri reynsla Austurlands af verkefni tengdu innviðafélagi eða álíka aðferðafræði — við kynntumst því í gegnum Öxi, heilsársveg sem var settur upp sem PPP-verkefni á síðustu samgönguáætlun. Þá var maður einmitt vongóður um að það kæmi eitthvert félag að verkefninu til hálfs við ríkið og það yrðu veggjöld. En þetta féll bara alveg um sjálft sig og það fékkst enginn að borðinu til að fjármagna framkvæmdina til hálfs þrátt fyrir að veggjöld yrðu greidd. Þess vegna er ég skeptísk, verð ég að segja, og svona aðeins hrædd við þessa aðferðafræði, sérstaklega þegar maður er frá fámennara landsvæði með minni umferð en er á suðvesturhorni landsins. Kannski hefur það akkúrat verið þannig með Öxi, þetta verkefni, að veggjöldin myndu kannski ekki standa undir þessari helmingsfjármögnun.

Ef innviðafélagið gengur vel og stór verkefni hér á suðvesturhorninu verða sett í það þá hafa verkefni verið gefin út hérna í töflu á bls. 18 í nefndarálitinu sem ætti að vera hægt að fjármagna betur eða flýta þeim. Í þeirri töflu er gert ráð fyrir að framkvæmdin um Kjalarnes fari til innviðafélagsins og þá er sagt að það skapi auka fjárhagslegt rými í samgönguáætlun upp á 6,3 milljarða. Það er 2,1 milljarður árlega árin 2027–2029. Í töflunni, ef ég horfi hér á Norðausturkjördæmi, sem er mitt kjördæmi, eru skilgreind þrjú verkefni sem hægt væri að fjármagna betur eða flýta. Það fyrsta er 400 millj. kr. viðbótarframlag í Öxi 2029, 200 millj. kr. í hrunvarnir á Suðurfjarðavegi, sem væri þá 2027, og 432 millj. kr. í aðflugsljós á Akureyrarflugvelli sem yrðu færð fram til 2027 í stað annars tímabils sem er 2031–2035, eins og það lítur út í samgönguáætlun núna. En svo er bara spurningin hvort það verði af þessu. Verkefnið við Öxi er ekki fullfjármagnað og það á að draga það alla vega í a.m.k. átta ár til viðbótar, yfir tvær ríkisstjórnir. Mikil þörf er á vegaframkvæmdum við Suðurfjarðaveg einnig og svo eru það hrunvarnirnar, þær eru einnig settar inn og þær eru auðvitað mikilvægar. Í þriðja lagi eru það aðflugsljós á Akureyrarflugvelli sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hefur komið með breytingartillögu um, þ.e. að flýta þeirri uppsetningu einmitt til ársins 2027 í stað 2031. Einnig kemur fram í breytingartillögu hans mikilvægi þess að komandi framkvæmdir við akbraut og flughlað á Egilsstaðaflugvelli taki þrjú ár í stað fimm ára.

Mig langar einnig að koma inn á annað málefni í samgönguáætlun. Það varðar fjarskipti. Ég hef miklar áhyggjur af stöðu fjarskipta hér á landi. Mestu reynsluna hef ég auðvitað af Austurlandi og innsýnina, en við hjá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi létum gera úttekt á fjarskiptum á Austurlandi fyrir u.þ.b. tveimur árum. Þá var staðan sú að það vantaði um sjö senda á Austurlandi til að fulldekka góð fjarskipti á öllu Austurlandi. Sú staða var áhyggjuefni á þeim tíma en staðan hefur heldur betur breyst síðan og til hins verra, því miður, því nú í ofanálag er búið að leggja niður eða að fasa út, eins og það er orðað, 2G og 3G farsímakerfin. Helst heyrir maður frá íbúum dreifbýlisins þar sem símasamband hefur dottið út við þessa útfösun sem snertir þannig öryggi íbúanna. Fólk getur ekki einu sinni náð í 112 á ýmsum svæðum ef svo ber undir og mér finnst áhyggjuefni að búa í rauninni við svo mikla ógn. Eins og kemur fram í nefndarálitinu hafa slæm fjarskipti neikvæð áhrif á öryggi, búsetufrelsi og rekstrarskilyrði atvinnulífs á landsbyggðinni. Þar er einnig kveðið á um að lokið verði við uppbyggingu farnetssambands á öllum stofnvegum eigi síðar en árið 2028 en bæta verði samband víða á stofn- og tengivegum og í dreifbýli þar sem staðan er víðast hvar verri. En útfösun á 2G og 3G farsímakerfum sem nú er í gangi, hefur leitt til þess að símasamband er slæmt á þeim svæðum þar sem 4G og 5G hafa ekki náð fullnægjandi útbreiðslu. Þá hugsar maður einmitt: Af hverju var farið í að fasa þau út ef útbreiðsla 4G og 5G er ekki fullnægjandi? Það er dálítill ábyrgðarhluti að hleypa því ekki af stað. Nú þekki ég ekki alveg hverjir stýra og stjórna algjörlega þar á bak við, hvort það séu bara fjarskiptafyrirtækin eða Alþingi sem gæti sett niður eitthvað ákveðið í þeim efnum. Staðan er víst einna verst á Vestfjörðum en hún er einnig slæm á Austurlandi í dreifbýlinu og einnig á þjóðvegum ásamt stofn- og tengivegum á því svæði. Ég tel að það þurfi virkilega að leggjast yfir þessa alvarlegu stöðu og finna lausnir til að tryggja öryggi íbúa hér á landi. Er fjarskiptafyrirtækjunum gefið allt of mikið tímasvigrúm til að koma þessum málum í lag, sem er fyrir árslok 2028? Mér finnst alla vega að það þurfi að bregðast við. Þetta er það mikilvægt mál.