samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Mig langar að koma aðeins inn á fjarskiptamálin vegna þess að ég deili áhyggjum þingmannsins. Ég er að leita að því hvar þetta er í nefndarálitinu. (Gripið fram í: Átján. )Ég hef tekið þessi mál ítrekað upp, bæði á fundum umhverfis- og samgöngunefndar og beint við hæstv. innviðaráðherra, varðandi útfösun á 2G og 3G og innleiðingu á 4G og 5G. Fyrir það fyrsta er tengingin verri í dag en hún var áður, sérstaklega úti á landsbyggðinni, og í mínu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, er þetta sýnu verra. Þau svör sem ég hef fengið frá hæstv. ráðherra eru þau að þetta eigi að tryggja betra samband á kjörtímabilinu. Ég hef sagt að mér finnst þetta vera óviðunandi svar vegna þess, eins og þingmaðurinn nefndi, að það er þannig á einhverjum stöðum að það næst ekki einu sinni samband við 112. Mér finnst þetta óviðunandi, ekki nema ráðherrann sé að segja okkur að ríkisstjórnin sé að falla og það sé að koma ný stjórn sem taki við. En ef þessi stjórn heldur til 2028 þá er þetta fullkomlega óviðunandi svar. Annað sem ég hef einnig heyrt er að þessi ákvörðun varðandi útfösun 2G og 3G og innkomu 4G og 5G og hvernig þetta allt saman er gert sé viðskiptaleg ákvörðun og þetta sé á forræði fjarskiptafyrirtækjanna. Mér finnst það óásættanlegt. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja þingmanninn hvaða skoðun hún hafi á því og hvort hún sé mögulega sammála mér.