157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:59]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar fyrra svar. Það er nefnilega svolítið merkilegt með blessaða ríkisstjórnina að hún er alls staðar að leita að peningum. Hún er alls staðar að leita að leiðum til þess að hækka skatta og bara núna á ráðstefnu hér hinum megin við Austurvöllinn kom einn hv. þingmaður og sagði að það væri nauðsynlegt að hækka skatta. Það á að hækka skatta, skatta, skatta, það er það eina sem á að gera. Svo eru risaverkefni eins og Fljótagöng hér á dagskrá en þau eru ekki í fjármálaáætlun, þau eru hvergi. Það á samt að fara í Fljótagöng. Það á að rjúfa kyrrstöðuna og byrja að bora en þau finnast hvergi. Mig langar bara að spyrja: Hvað finnst hv. þingmanni um þessi vinnubrögð?