157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:00]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hélt að hv. þingmaður ætlaði að spyrja mig hvar þessi Fljótagöng væru, hvort ég gæti fundið þau, en hann nefnir að þau finnist hvergi. Þau eru auðvitað í kollinum á mjög mörgum og margir hafa miklar væntingar til þeirra og ég er í sjálfu sér á meðal þeirra. Ég held að það sé mjög brýnt að fara í þá framkvæmd í margvíslegu tilliti þannig að það er ágætt að nefnt sé að það eigi að fara í þau. En það er algerlega ófullnægjandi að nefna þá ekki um leið hvernig menn ætla að fjármagna þau göng eða eyrnamerkja hreinlega fé til þessara ganga heldur er farin sú leið að treysta á guð og lukkuna í því sambandi, treysta því að innviðafélag geti farið í arðbærar framkvæmdir hér á landi með einhverri ofurskattlagningu á Reykvíkinga sem síðan á með einhverjum bókhaldsbrellum að flytja út á land í einhverjar framkvæmdir þar. Þetta er auðvitað ekki ásættanlegt fyrirkomulag.