157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:01]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Mér finnst mjög áhugavert að heyra sjónarmið frá þingmönnum höfuðborgarsvæðisins af því að samgöngumál eru auðvitað ekki bara málefni landsbyggðarinnar heldur einnig höfuðborgarsvæðisins. Þetta var mjög áhugaverð ræða frá hv. þm. Sigríði Á. Andersen. Mér finnst líka gaman að velta fyrir mér samspili góðra samgangna hérna á höfuðborgarsvæðinu, greiðra samgangna, og á landsbyggðinni. Þegar ég keyri úr mínu kjördæmi yfir Hellisheiðina þá er þar voða fínn tvíbreiður vegur. Svo keyrir maður áfram út á Vesturland. Þar er ekki jafn æðislegur vegur. Vegir út af höfuðborgarsvæðinu eru auðvitað flóttaleið fyrir höfuðborgarbúa og ég hefði áhuga á að heyra frá hv. þingmanni hvert henni finnist brýnast að beina þessum fjármunum — Sundabraut, Kjalarnesvegur hefur verið nefndur hér o.s.frv., og auðvitað Hellisheiðin, það á eftir að tvöfalda þar smáspotta — vegna þess að hér er búið að vera að hækka skatta í nafni uppbyggingar á vegakerfinu. Ég væri til í að heyra hennar sjónarmið um þetta mál.