samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir gott svar. Ég vil halda áfram aðeins í skattatalinu. Eins og ég kom inn á í mínu fyrra andsvari er búið að hækka hér skatta í nafni uppbyggingar á vegakerfinu. Þegar maður lítur yfir ráðstöfun á fjármunum hvað varðar höfuðborgarsvæðið í þessari þingsályktunartillögu þá er þar mjög mikið af ef og hefði, t.d. hvað varðar Sundabraut, að hún verði fjármögnuð með gjaldtöku í gegnum innviðafélag. Ef maður lítur á fyrsta markmið þessarar samgönguáætlunar, með leyfi forseta, er það svohljóðandi: „Unnið verði að áframhaldandi uppbyggingu hágæðaalmenningssamgangna, borgarlínu og annarra samgöngumannvirkja á grundvelli samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.“
Telur hv. þingmaður fjármagn þar fylgja þessu markmiði sem er tekið fram í a-lið 2. gr.?