samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir mjög góða ræðu og einnig fyrir að fá að koma í púltið á eftir þér. Ég þarf ekki að eiga við það einu sinni. En ég þakka fyrir þessa ræðu og maður heyrir að samgöngumál brenna á okkur öllum, sama hvar við búum. Það er akkúrat þannig. Maður finnur líka þegar maður kemur hingað suður að það er bara með ólíkindum hvað maður er lengi að komast í gegn og það er allt stopp. Mér fannst líka áhugavert, eins og hefur komið fram, að upp á síðkastið og núna eru svo miklar ákvarðanir um skatta, aukna skatta. Ég var heldur ekki með það á hreinu hvað skattar á bifreiðaeigendur eru miklir og eins og þessir 78 milljarðar og mögulega hærra fjármagn skili sér bara ekki til þeirra samgönguinnviða eða í þau verkefni sem það á að fara í. Ég tengi alveg við þetta og það er eins með varaflugvallargjaldið. Það fer ekki nema helmingur varaflugvallargjaldsins í uppbyggingu. Það er komið óþol hjá öllum fyrir þessu: Ég er að borga skatta og þeir eiga að fara í það sem við erum að borga fyrir. Maður finnur þetta víða hjá fólki. Við horfum líka til þess, eins og ég hef sagt, með þetta innviðafélag að það var reynt á Austfjörðum með Öxi og það gekk ekki. Það var ekki farið í þessa framkvæmd af því að það voru of fáir sem keyrðu þar um, þrátt fyrir gjaldskyldu, þannig að þá er verið að horfa á suðvesturhornið. Ég skil þetta óþol fyrir gjaldskyldu en ég spyr: Hefur verið gerð einhver könnun þannig að fólk á höfuðborgarsvæðinu geti svolítið svarað því hvað það vill í þessum málum varðandi gjaldskyldu, af því að áherslan er á þessi mál akkúrat núna?