samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Þær framkvæmdir sem vísað er til og varða Reykjavík eru í tengslum við þennan höfuðborgarsáttmála. Það er enn þá og ég held meira að segja ný borgarstjórn, ég held að ég leyfi mér að fullyrða það og leyfi mér að vona það og hafa einhverjar væntingar um það, ætli að óska eftir endurskoðun á þessum samgöngusáttmála. Þannig að það liggur alveg fyrir með þessar framkvæmdir sem nefndar eru í Reykjavík að það verður ekki farið í þær í náinni framtíð. Hugmyndir um Miklubraut í jarðgöng sem á að verja 50 milljörðum í, í það verkefni, á árunum 2031–2040 — 50 milljarðar held ég að sé algjört og fullkomið vanmat, nema þetta sé bara einhver undirbúningskostnaður — þegar hægt er að fara í gerð mislægra gatnamóta með stokkframkvæmd undir gatnamótum fyrir miklu lægri fjárhæðir og sem tekur miklu skemmri tíma. En svo er það þannig, því miður, að sú borgarstjórn sem hefur verið hér við lýði í áratug eða meira hefur markvisst grafið undan möguleikum Reykvíkinga til að fá góðar samgönguumbætur. Það er verið að þrengja meira að segja að Miklubrautinni sem er stærsta umferðaræð landsins og menn hafa leyft sér það hér að skipuleggja byggð 20 m frá Miklubrautinni. Ég á reyndar eftir að sjá það fólk sem sækist í að búa við slíka umferðargötu. Þetta er algerlega glórulaus þróun sem Reykjavík, Reykjavíkurborg og landslagið þar, hefur þurft að sitja undir og búa við síðustu áratugi, algerlega glórulaus, og ég vona að það horfi til bóta þar. En forsenda þess að það horfi til bóta er að þessi samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins verði tekinn til gagngerrar endurskoðunar.