157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:23]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir umfjöllunina. Ég tek undir sjónarmið um að það er sannarlega svo margt í þessum júnímánuði, þangað sem við erum komin, sem er hálfpartinn í lausu lofti. Við erum auðvitað að ræða samgönguáætlun út frá fyrirhugaðri stofnun innviðafélags sem enn ríkir óvissa um hver útfærslan verður á. Ofan á bætist fjármálaáætlunin þar sem verulegar efasemdir eru um að forsendur haldi, þótt hæstv. ríkisstjórn veigri sér kannski við að horfast almennilega í augu við það á þessu stigi. En það breytir sannarlega, eins og hv. þingmaður víkur að, umræðunni um samgönguáætlun af því að ekki aðeins er samgönguáætlunin í eðli sínu búin að vera á undanförnum árum óáreiðanlegt fyrirbæri að mörgu leyti — ekki síst eftir síðustu tíðindi þar sem maður sá það fyrir jól að það er verið að breyta þarna forsendum. Þá eru margir, víða, sem spyrja sig svona áleitinna spurninga, getum við sagt, um hlutverk samgönguáætlunar og hlutverk þessa plaggs í gangverkinu hjá okkur. Hv. þingmaður nefnir t.d. Fljótagöngin, sem ég tel þó mjög gott verkefni. Það verður auðvitað opinbert fjármagn í aðalhlutverki þar en þetta fjármagn finnst ekki þótt menn fari af stað með þetta núna. Hvar er þetta fjármagn? Hvað segir þetta okkur um það sem margir aðilar úr mörgum áttum benda á, t.d. bara Samtök iðnaðarins, ef maður les umsögn þeirra um að þessi óvissa í opinberum framkvæmdum og áætlanagerð í opinberum framkvæmdum sé sannarlega skaðleg og að það sé bara raunverulegt vandamál að þetta sé svona?