157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:27]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að auðvitað ríkir innviðaskuld á ýmsum sviðum samfélagsins. Hér á höfuðborgarsvæðinu hafa íbúar ekki farið varhluta af innviðaskuld í samgöngumálum. Hér hefur alls ekki nógu mikið hreyfst til betri vegar á sviði stofnvegaframkvæmda og raunverulegra samgöngubóta á höfuðborgarsvæðinu sem skipta máli og breyta umferðinni. Sundabrautin er iðulega nefnd og er nú fyrirhugað enn þá, held ég, að fara í útboð á þessu ári, 2026, og að verklok geti verið bara eftir nokkur ár. Því er lýst þannig í meirihlutaáliti hér og þetta eru ártölin sem nefnd eru. Auðvitað er þessi framkvæmd á meðal þeirra framkvæmda sem menn hafa nefnt í sambandi við innviðafélagið, að sjálfsögðu, vegna þess að þetta verður augljóslega þannig að það verður það mikil umferð þarna að ef þarna verða sérstök veggjöld þá er augljóst að þetta getur borgað sig.

Hver er innsýn hv. þingmanns í þá klemmu sem hefur ríkt gagnvart því að gera þetta bara ekki miklu fyrr? Hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni t.d. lífeyrissjóðina og alls konar aðila sem eru áhugasamir um að fara í svona verkefni. Hvaða flækjustig erum við að glíma við hérna sem hefur sett þetta allt í stopp? Heldur hv. þingmaður að bara með stofnun þessa innviðafélags sé umgjörðin komin sem leysi þetta allt? Eða eru aðrir þættir að verki hérna, t.d. með það hversu tvístígandi hið opinbera er í þessum málum, sem veldur þessu stoppi? Hversu miklar væntingar hefur hv. þingmaður til þess að innviðafélagið, þegar að því er komið, sama í hvaða útfærslu það verður, geti raunverulega farið að hreyfa við þessum atriðum, sem eru augljóslega þjóðhagslega hagkvæm, eru augljóslega áríðandi út frá mörgum sjónarhornum en hafa einhvern veginn æ ofan í æ lent ofan í skúffu?