157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:43]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér samgönguáætlun undir lok þingsins sem samkvæmt starfsáætlun átti að ljúka á morgun, ef ég man rétt, og ýmis önnur mál eru ókláruð og samgönguáætlun að mínu mati ekki fullrædd. Þess vegna vekur það nokkra athygli mína að í þingsal skuli ekki vera neinn úr meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, hvað þá ráðherrann, og reyndar aðeins einn þingmaður stjórnarmeirihlutans að taka þátt í umræðunni eða sem hægt er að eiga orðaskipti við. Ég vil bara vekja athygli forseta á þessu þegar hér er komið við sögu í þessum þinglokum. Maður skyldi ætla að menn væru uppteknir af því að reyna að klára málin og reyna að hjálpa til við það.

Mig langar að byrja hér fyrstu ræðu mína á því að fjalla um miklar yfirlýsingar meiri hlutans og ráðherrans og ríkisstjórnarinnar þegar samgönguáætlun var kynnt undir merkjunum: Ræsum vélarnar og fullfjármögnuð samgönguáætlun. Þetta voru svona tímamót, þetta var eitthvað nýtt og þetta var stórkostlegt. Svo kom nú samgönguáætlunin. Hún fór ekki í samráðsgátt sem er algengast og síðasta samgönguáætlun sem t.d. fór í samráðsgátt fékk yfir 80 umsagnir. Þeim var svarað á mánuði og síðan fór málið aftur til þingsins og þar komu aftur yfir 80 umsagnir sem þingið fékk þá möguleika að fara yfir. En þessi ríkisstjórn sleppir því oft að senda mál í samráðsgátt og kemur með þau hingað inn sem er auðvitað gallað því að þar er þó tækifæri fyrir allan almenning að koma sínum sjónarmiðum að. Auðvitað er það hægt líka í þinginu en það er þó alla vega einn ferill sem er búið að taka út.

Þegar maður fór síðan að lesa samgönguáætlunina vakti það athygli mína að þekkja nánast hverja einustu framkvæmd sem þarna var nema mörgum þeirra hefði verið seinkað fram á næsta tímabil samgönguáætlunar, þ.e. ekki fyrstu fimm árin, eða seinkað innan fyrstu fimm áranna. Síðan á bls. 47, með leyfi forseta, er í sjálfri þingsályktunartillögunni fjallað um mat á umhverfisáhrifum samgönguáætlunar. Áður en ég les þá ætla ég að rifja upp að það er skylda að leggja fram með samgönguáætlun umhverfismat á áhrifum áætlunarinnar, því það er stór áætlun. Þessi ríkisstjórn sleppti því en segir:

„Unnið var að mati umhverfisáhrifum áætlunarinnar og fylgdi umhverfisskýrsla sem mat áhrif samgönguáætlunar með tillögu að þingsályktun haustið 2023.“

Það er að segja sú samgönguáætlun sem var lögð fram á síðasta kjörtímabili en náði ekki að klárast hérna í þinginu áður en það urðu kosningar. Síðan segir, með leyfi forseta:

„Ekki er talin þörf á að uppfæra mat á umhverfisskýrslu sem fylgdi síðustu tillögu að þingsályktun um samgönguáætlun haustið 2023. Ástæða þess er sú að í fyrri umhverfisskýrslu var að finna umfjöllun um helstu framkvæmdir sem gerð er tillaga um hér. Með tilliti til umhverfisáhrifa teljast því breytingar óverulegar, sérstaklega hvað varðar neikvæð umhverfisáhrif“

Sú samgönguáætlun sem liggur hér fyrir er meira og minna framhald þeirrar áætlunar sem var lögð fram á árinu 2022 eða 2023 en náði ekki fram að ganga fyrir kosningar. Það voru nú öll nýju tíðindin í þessari samgönguáætlun. En fjármögnunin, tölum aðeins um hana. Stóra myndin er sú að það vantar verulegt fjármagn í samgönguáætlun, sennilega allt að 15 milljarða á ári. Ef við förum á bls. 14, með leyfi forseta, þar sem fjallað er um fjármál samgönguáætlunar, sundurliðun útgjalda, kemur t.d. fram að framkvæmdir á vegakerfinu, sem er reyndar liður sem er bæði nýframkvæmdir og viðhald, eru um 34 milljarðar á ári næstu fimm árin og væntanlega samhljóða í samgönguáætlun. Síðan bætast við Betri samgöngur þar sem eru settir um 7 milljarðar á ári í fimm ár. Þetta er auðvitað í engu samræmi við þær yfirlýsingar meiri hlutans hér í fyrrasumar, þegar rætt var um veiðigjöld sem áttu að hækka um 7,5 milljarða, gerðu það reyndar ekki af því að það voru ekki efni til þess að slíkar upphæðir myndu skila sér. En það áttu að vera 7,5 milljarðar og þeir áttu allir að renna í samgönguverkefni úti á landi, enda var verið að taka peningana af landsbyggðinni, umtalsverða. Síðan voru lögð á vörugjöld hér um áramótin upp á aðra 7,5 milljarða. Þeir fjármunir áttu líka að skila sér í samgönguáætlun og þeir sem eru glöggir eru búnir að leggja saman 7,5 og 7,5 og finna út að það eru 15 milljarðar. Síðan var við hækkun kílómetragjaldsins kostnaður á bíla aukinn um 3,3 milljarða. Þessir fjármunir áttu líka að skila sér til samgönguverkefna.

Með öðrum orðum: 18,3 milljarðar áttu að bætast við en ekki þessir 7 sem fara síðan allir í höfuðborgarsáttmálann, fara sem sagt ekki út á land. Þessir nýju 7 milljarðar sem eru að bætast við fara ekki út á land heldur fara þeir til að fjármagna samgöngusáttmálann út allan tímann, fullfjármagna hann með þeim hætti. Þannig að fullfjármögnuð er samgönguáætlun ekki því að þegar meiri hlutinn horfir síðan ofan í það sem þarf að gera sjáum við að það er búið að seinka verkefnum innan tímabils, t.d. vegaframkvæmdum og við sjáum að Hafnabótasjóður, sem var tæpir 1.600 milljarðar á þessu ári, fer niður í rétt rúmlega 1,3 milljarða á næstu fjórum árum og þar mun vanta fé. Ég fór yfir það í andsvari hér í fyrri umræðu að mér sýnist að það sé verið að taka nokkra milljarða af innanlandsflugvöllunum ef við leggjum það saman yfir árabil. Þar vantar sem sagt fullt af peningum sem ríkið er að taka til sín úr samgöngum. Það er auðvitað enginn bragur á því að rannsóknarnefnd samgönguslysa, hin mikilvæga nefnd, sem er ekki með mikið fjármagn, eða 235 milljónir árið 2026, skuli eiga smátt og smátt að fara niður á næstu fimm árum og enda í 227 milljónum. Það væri nær að setja eitthvað meira í kringum það.

Síðan vitum við að framkvæmdir á vegakerfinu þurfa umtalsvert meiri fjármuni. Vetrarþjónustan þarf umtalsvert meiri fjármuni heldur en hér er lagt til og hér eru 10,4 milljarðar á árinu 2026 en þeir enda í 9,8 og meiri hlutinn í meirihlutaálitinu leggur ekki til neinar hækkanir. Þeir leggja ekki til neinar hækkanir. Styrkir til almenningssamgangna eiga líka að fara lækkandi en meiri hlutinn leggur þar til aukningu og er það vel. Það þarf.

En stóra myndin er þessi: Hér er ekki um nein tíðindi að ræða. Hér er gömul samgönguáætlun uppfærð og vegna þess að kostnaður við framkvæmdir hefur vaxið umtalsvert í svona hárri verðbólgu þá hefur það þýtt að framkvæmdum er seinkað. Þetta er alvanalegt og hefur gerst oft áður og mun gerast áfram nema menn komi inn með aukið fé. Þannig að tíðindin um að hér sé einhver svakaleg „ræsum vélarnar“ að fara af stað er auðvitað einhvers konar þvæla.

Breytingin á jarðgangaáætlun er sannarlega umdeild og erfitt að útskýra hana öðruvísi en að hún er bara pólitísk ákvörðun. Hún þýðir líka það að jarðgangastoppið heldur áfram. Það verður ekki farið að bora nein göng. Auðvitað þekkjum við að það er auðvitað skilgreiningaratriði hvenær framkvæmdir hefjast. Er það þegar búið er að taka ákvörðun um það og þær fara inn á einhverja teiknistofu eða verkfræðistofu í einhverja hönnun? Eða er það þegar grafan kemur? Er það þegar borinn kemur? Í hugum fólks er það sem ríkisstjórnin var að reyna að búa til, ræsum vélarnar, að það væri bara byrjað að grafa göng strax, hér og nú. Það er auðvitað ekki þannig heldur. Þannig að öll þessi orðræða er röng og fullfjármögnuð er áætlunin ekki. Þess vegna fer meiri hlutinn í þessa vegferð að stofna hér innviðafélag sem er áhugavert og mikilsvert. Það er búið að vinna að þessu í fjölmörg ár.

Niðurstaðan veldur mér umtalsverðum vonbrigðum og ég mun fara yfir það í ræðu hérna um innviðafélagið á eftir, því hér er um að ræða einhvers konar fjárfestingarfélag þar sem arðsemi er einu rökin. Það væri alveg eins hægt að vera að byggja gagnaver eða íbúðarhúsnæði eða hvað sem er. Þetta er bara fjárfestingarfélag sem er ekki einu sinni stjórnað af samgönguyfirvöldum. Hvorki Vegagerðin né samgönguráðherra kemur að þessu félagi. Það er fjármálaráðherrann. Þetta er bara nýfrjálshyggja af verstu tegund og horfi ég nú á hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins þegar ég segi þetta. Og þetta er í boði Samfylkingarinnar, Jafnaðarmannaflokks Íslands, sem býr til fjárfestingarfélag og segir: Þetta er lausnin, frú forseti, þetta er lausnin.

Hvernig á þetta að gerast? Jú, í samgönguáætlun eru ýmis verkefni merkt. Þetta gæti hugsanlega farið inn í innviðafélagið. En það er innviðafélagið sjálft sem á að taka ákvörðun, ekki þingið, ekki Vegagerðin, ekki samgönguráðherrann heldur félagið sjálft sem á að taka ákvörðun og bara út frá arðsemi. Hvaða verkefni verður þá ekki farið í? Ja, það eru verkefnin úti á landi, t.d. verkefni eins og Fljótagöng. Eins og ég segi, ég ætlaði ekki að fara djúpt í umræðu um innviðafélagið fyrr en við komum að því máli, vonandi seinna í umræðunni áður en þingi lýkur, ef ríkisstjórnin tekur ekki það mál til sín og skoðar aðeins betur.

En varðandi umræðuna um að hér hafi ekkert verið gert þá er það auðvitað þannig að í efnahagshruninu stöðvuðust allar framkvæmdir. Samgönguframkvæmdum var viðhaldið til ársins 2010. Eftir það urðu þær að engu. Það sama gilti um húsnæðisuppbyggingu og allar aðrar fjárfestingar ríkisins. Með öðrum orðum, Samfylkingin, sem er nú að störfum í núverandi ríkisstjórn, er svolítið að sópa upp eftir það sem hún gerði í uppsópinu 2009–2013. Hún gerði margt vel en það var ekki gott að stöðva allar fjárfestingar á þessum tíma, sérstaklega ekki í samgöngumálum þegar við fengum á næstu árum þar á eftir þessa svakalegu ferðaþjónustuaukningu yfir okkur með tilheyrandi álagi og síðan vaxandi jákvæða efnahagsþróun í landinu með hagvexti og vexti fyrirtækjanna, fiskeldi og ýmis önnur umsvif sem hafa verið á landsbyggðinni. Þess vegna þykir mér það leitt og talað niður til fólks þegar hér koma upp þingmenn, jafnvel framsögumenn málsins, og halda því fram að hér sé einhver skurðpunktur. Nú gerast einhver svakaleg tíðindi.

Ég sá grein eftir mann úti í samfélaginu sem heitir Sigurður Páll Ingibergsson og birti hana í blaði Hornfirðinga. Hann hafði skrifað grein árið 2016 og komist að því að á veginum frá Reykjavík að Höfn væri 21 einbreið brú. Þegar sá sem hér stendur kom inn í samgönguráðuneytið 2017 var það eitt af markmiðunum að setja eitthvað í gang. Núna eftir nokkra daga þegar Hornafjarðarfljótið verður opnað verður búið að fækka einbreiðum brúm á þessum kafla um 13. Það eru átta eftir samt. Það eru átta eftir og í þessari samgönguáætlun er verið að ýta þeim verkefnum aftar, hvað þá brúnum á Austurlandi sem skipta máli, á hringveginum. Það hefði verið skynsamlegt sem einhvers konar sárabót eða upplegg af hálfu ráðherrans eða meiri hlutans, þegar þessi umdeilda breyting á jarðgangaáætluninni er gerð, að segja: Ja, við ætlum samt að koma hingað og setja bara þessar þrjár brýr saman, á Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði, setja þær bara í sameiginlegt útboð og klára þær einn, tveir og þrír. Ráðherrann stærði sig af því að það yrði eitt hringtorg sett. Meiri hlutinn í meirihlutaálitinu er að taka það hringtorg út og setja í Öxi. Það eru vissulega peningar sem eru á sama svæði. En það hefði auðvitað verið virðingarvert.

Mér finnst vera talað niður til fólksins sem keyrir Suðurstrandarveginn eftir suðurströndinni þegar það er sagt að hér hafi ekkert gerst þegar 13 einbreiðar brýr eru horfnar. Mér finnst talað niður til fólksins á Vestfjörðum þegar sagt er: Það hefur ekkert gerst miðað við allar þær gríðarlegu framkvæmdir sem þar hafa átt sér stað á síðustu átta árum. Fleira mætti auðvitað telja upp í þessu samhengi.

Til að taka þennan þátt ræðu minnar saman, af því að ég sé að það gengur ískyggilega hratt á tíma minn, þá er staðan þessi: Þessar miklu yfirlýsingar um að ræsa vélarnar, að allt sé fullfjármagnað og að hér hafi aldrei gerst neitt fyrr en þessi samgönguáætlun kemur fram, er allt blöff, þetta er allt froða. Við erum öll sammála um það hérna inni að samgöngur eru það mikilvægasta sem við byggjum upp í þessu landi, alla vega eitt af því mikilvægasta sem við gerum. Því án góðra samgangna getum við ekki byggt upp landið okkar, þá getum við ekki byggt upp fyrirtækin og getum við ekki byggt upp atvinnulífið. Þá getum við ekki byggt upp blómlegt líf fólks.

Stóra myndin er þessi: Það vantar umtalsvert fé. Fyrir nokkrum árum var hugmyndin þess vegna þessi: Hvernig eigum við að komast út úr þessu? Ein leiðin var: Það verða gríðarlegar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Eina leiðin til að komast út úr því er að búa til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem við tökum þau verkefni svolítið út fyrir sviga. Þessi ríkisstjórn, þessi meiri hluti, er í raun og veru að fullfjármagna það hér úr samgönguáætlun. Það var ekki hugmyndin. Á sama tíma var farið til þingsins og sagt: Búum til verkefni, svokallaðar samvinnuleiðir. Til þess að þingið hefði eitthvað um það að segja hvaða verkefni væri farið í var það þingið sem í lögum ákvað að það væru fimm verkefni sem væri hægt að fara í með þessum hætti. Það var líka hægt að fjármagna það með einhvers konar innviðafélagi. Við eigum slíkt innviðafélag, ríkið á eitt slíkt innviðafélag, það heitir Spölur, og það hefði alveg verið hægt að nota það.

Það er líka áhugavert að velta því fyrir sér, ef við horfum á hvernig þetta væri, að höfuðborgarsáttmálinn væri einn pakki, samvinnuverkefnin væru einn pakki, þá væri samgönguáætlunin verkefnin sem eftir eru. Þá þyrfti kannski ekki 20 milljarða á ári í aukningu heldur myndu kannski 10 nægja en þeir 10 milljarðar koma ekki. Það koma einhverjir 7, 8 og þeir fara í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þeir fara ekki út á land. Þessir 18,3 milljarðar sem ríkisstjórnin hefur sagt að hefðu átt að fara út á land, þegar er verið að leggja gjöld á landsbyggðina, að auka álögur, eru ekki að fara út á land. Það er einfaldlega þannig.

Þegar meiri hlutinn stærir sig af því að hér sé gríðarleg aukning í viðhaldi og það sé mikilvægt þá ætla ég að taka undir það. Það er gríðarleg aukning og það er gríðarlega mikilvægt. En hlutfallsleg aukning þess er ekki svo mikil. Þegar sá sem hér stendur kom inn í ráðuneytið höfðu á árinu 2017 verið settir 5,5 milljarðar í viðhald, 2024 voru þeir á bilinu milli 12 og 13 og stefndi í 15. Þessi ríkisstjórn ætlar að fara í 20. Það er aukningin, 5 milljarðar. Hlutfallslega augljóslega talsvert minna. Það er mikilvægt, ég ætla ekkert að draga úr því. Svo eru auðvitað flæðandi skilgreiningar á því hvað er nýframkvæmd og hvað er viðhald. Þegar þú tekur upp gamlan veg eða gamla brú, er það nýframkvæmd eða er það viðhald? Þess vegna er þetta á sama bókhaldsliðnum.

Það er áhugavert að við jukum á einum tíma í samgönguáætlun til að mynda fjármuni til tengivega sem eru gríðarlega langir og miklir á Íslandi, mikið af malarvegum, um 3.500 km. Þar voru um 900 milljónir settar í þetta. Við byrjuðum á að tvöfalda fjármagnið til þess, þ.e. í 2 milljarða, rúmlega tvöfölduðum þetta, og síðan komu 500 milljónir til viðbótar. Þessi ríkisstjórn ætlar að halda sig við 2,2 milljarða allan tímann. Hér hefði þurft að auka það um milljarð, 1,5, jafnvel 2, ef við ætlum að vinna nægilega hratt á tengivegapottinum. Það sama gildir um sjóvarnir sem er alveg sérstakt verkefni og ég fæ ekki tækifæri til að tala um það í þessari ræðu og óska því eftir að vera settur á mælendaskrá aftur af forseta.

Samantekið vil ég bara segja við meiri hlutann: Samgönguáætlun er nauðsynleg. Hún er tæki til þess að halda áfram að byggja upp. Ekki láta eins og þessi samgönguáætlun sé eitthvert svakalegt nýtt plagg. Hún er það ekki. Þið viðurkennið það sjálf í textanum þar sem þið segið að hún þurfi ekki að fara í umhverfismat áætlana vegna þess að þetta sé sama áætlunin og var lögð fram 2023. Ekki halda því fram að hún sé fullfjármögnuð þegar þið stofnið innviðafélag með óskilgreindum hætti og ætlið síðan að taka verkefni út úr því og þannig búa til peninga. Þá er hún ekki fullfjármögnuð. Það veit enginn hvernig það á að gerast af því að það er innviðafélagið sjálft sem á að taka slíka ákvörðun. Ekki halda því fram að hér sé verið að ræsa vélarnar þegar þær eru búnar að vera á fullu um allt land í talsverðan tíma. En vissulega þarf meira til. Ég mun svo sannarlega styðja slíkar hugmyndir. Aðalatriðið er: Inn í þessa samgönguáætlun vantar á bilinu 10–15 milljarða árlega til að hægt sé að standa undir þeim framkvæmdum sem nauðsynlegar eru.