samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það var mikilvægt að breyta aðeins áherslunum og leggja meiri áherslu á þessar aðalbrautir inn og út úr Reykjavík, þ.e. Reykjanesbrautina, þar á meðal í gegnum Hafnarfjörð, og Suðurlandsveginn austur fyrir fjall og eins Kjalarnesið, einfaldlega vegna þess að þar voru langtíðustu og alvarlegustu slysin. Það hefur bara gengið mjög vel og takk fyrir samstarfið við þau verkefni, þar á meðal breikkunina sem var flókin og þurftu að koma að bæði stórfyrirtæki, Hafnarfjarðarbær, ríkið og Vegagerðin, og tókst vel. Mér finnst þetta hljóma eins og meiri hlutinn sé svolítið að reyna að skreyta sig með alls konar fjöðrum án þess að vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera með því að segja: Þetta verkefni væri nú fínt fyrir innviðafélagið. Innviðafélagið á einhvern veginn að leysa allt en enginn veit hvað þetta innviðafélag er. Það er ekki undir stjórn þingsins. Það er ekki undir stjórn samgönguyfirvalda og það er ekki til. Það á eftir að stofna það, það á eftir að búa það til, þannig að ég held að þetta séu svona fuglar á flugi í skóginum en fáir í hendi.