samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Já, það er einmitt það sem maður heyrir á hv. þingmanni, að í sambandi við Fljótagöngin, eins og ég reyndi að víkja að, þá er auðvitað óvissa um fjármögnun, þótt menn haldi því fram að allt sé þetta fjármagnað. Sannarlega er það verkefni þannig vaxið að það myndi seint teljast til arðbærari veggjaldaframkvæmda. Þess vegna spyr maður sig á þessu stigi, ef af þessu verður öllu saman, að hér verði farið í að innviðafélag o.s.frv., og margir hafa náttúrlega lýst því yfir fullum fetum að framkvæmdir séu að hefjast, sannarlega, bara á allra næstu misserum, við Fljótagöng: Hefur hv. þingmaður trú á því að svo verði t.d. með Fljótagöngin, að þetta sé raunverulega bara að fara í gang eða hvernig sér hann það? Hvernig skilur hann samgönguáætlunina? Og svo út frá samþykkt þessa alls, hvort það verði raunverulega af því.