samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
VIrðulegur forseti. Það er nú þannig að eina lausn þeirrar vinstri stjórnar sem nú er við völd við gegndarlausri eyðslu á almannafé er að hækka skatta og álögur. Eins og kom fram í ræðu flokkssystur hv. þingmanns, hv. þm. Sigríðar Á. Andersen, eru skattar af ökutækjum um 78 milljarðar. Ef við brjótum niður framkvæmdaáætlunina núna næstu fimm ár þá eru þetta um 72 milljarðar sem fara í samgöngumál, 72 milljarðar, en samt sem áður þarf að auka skatta og álögur áfram með veggjöldum og öðru sem kemur ekki til með að draga úr neinni annarri skattlagningu heldur bætist þar ofan á. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvað finnst honum í rauninni um alla þessa skattlagningu sem á að fara að leggja á ökutækjaeigendur ofan á það sem nú er og ætti í rauninni að geta staðið undir núverandi samgönguáætlun?