samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætissvar við andsvari mínu. Í mínu seinna andsvari langar mig að velta aðeins upp þessum texta sem er að finna í — auðvitað er þetta allt samofið, samgönguáætlun og innviðafélag. Textinn, ef maður les hann og hefur hlustað á ræður meiri hlutans, sem eru kannski ekki allt of margar, skapar ákveðnar væntingar. Þetta hljómar allt mjög vel og hér tala menn fjálglega um það í pontu að þetta sé ríkisstjórn sem ætli að fara að bora göng og gera hitt og þetta. En það eru þessi væntingastjórnun og umbúðir sem ég hef áhyggjur af í öllu þessu máli. Hvað finnst hv. þingmanni um það hvernig stjórnmálamenn eiga að starfa? Eiga menn að keyra upp væntingar og svo verða vonbrigðin alltaf töluverð? Hvernig jafnvægi finnst hv. þingmanni að menn ættu að reyna að ná í hvað þetta varðar?