samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Stutta svarið við því er að það er mjög margt í öllu heildarsamhengi þessarar vinnu sem rennir stoðum undir hina fullyrðinguna um að þessi samgönguáætlun sé ekki fullfjármögnuð, ekki síst, einmitt eins og hv. þingmaður bendir á, núna þegar ofan á það bætist sú mikla óvissa sem ríkir um allar forsendur fjármálaáætlunar. Það eru auðvitað margir útreikningar sem menn eru að benda á að séu að öllu jöfnu breytilegir en það er engu að síður núna sem menn sem þekkja mjög vel til þessa sviðs og hafa starfað í þessu lengi segja alveg ljóst að forsendurnar séu brostnar. Hvernig menn bregðast við því, hvort þeir veigri sér enn við að taka þessa fjármálaáætlun til einhverrar endurskoðunar, er auðvitað bara spurning sem hæstv. ríkisstjórn svarar sjálf. En hvort það setji önnur stór áform í uppnám, eins og t.d. þessa samgönguáætlun sem nú þegar er í mikilli óvissu; jú, auðvitað hefur maður áhyggjur af því.