samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég tek undir þessar áhyggjur vegna þess að við vitum að forsendur fjármálaáætlunar hafa frá upphafi verið veikar. Við vitum líka í samhengi við samgönguáætlun að það eru stórar framkvæmdir, eins og Fljótagöng, sem eru ekki einu sinni fullfjármagnaðar í dag. Þegar maður hugsar um stöðuna á alþjóðamörkuðum í bland við þá staðreynd að samgönguáætlun og þær framkvæmdir sem hæstv. ríkisstjórnin hefur verið að leggja áherslu á eru ekki einu sinni fjármagnaðar í dag þá eðlilega hefur maður áhyggjur af því að tímaáætlanir á einstaka framkvæmdum bresti. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji það skynsamlegt við þessar aðstæður að hæstv. ríkisstjórn sé að tala um að það sé verið að fara að ráðast í fleiri jarðgangaverkefni á næstu fimm árum, eins og innviðafélagið muni geta keyrt allt þetta í gang, þegar þær forsendur sem ríkisstjórnin setur eru svona viðkvæmar og sömuleiðis ljóst að önnur jarðgöng þurfa meðgjöf sem kemur enn og aftur ekki fram á fjármálaáætlun?