samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu og þar komum við enn inn á það sama, að samgönguáætlun og það sem lagt er upp með í framkvæmdaáætluninni hefur náttúrlega í gegnum tíðina verið eitthvað sem margir ganga út frá að muni standast. Núna hafa auðvitað orðið breytingar á þessu trausti, í ákveðnum hópum sannarlega, t.d. á austurhluta landsins. Þar finnur fólk sannarlega að það er ekki hægt að hafa sömu væntingar til þess að þetta standist og verið hafa. Þá held ég einmitt að í ljósi þess sé það mikill ábyrgðarhluti fyrir ríkisstjórnina að gæta þess að vera ekki að skapa væntingar gagnvart verkefnum sem stendur síðan ekkert annað til en að valda bara áframhaldandi vonbrigðum með. Það held ég að sé mjög gott veganesti, að hafa þetta fastlega í huga gagnvart frekari vinnslu og frekari yfirlýsingum um hvað eina, að hér eigi alltaf að vera jarðgöng í gangi o.s.frv. Mín heitasta ósk væri sannarlega sú að innviðafélagið myndi raunverulega verða nýr drifkraftur inn í þetta en út frá þessari fjármögnunarþörf, innspýtingarþörf og stöðu ríkisfjármálanna hefur maður áhyggjur af þessu.