157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:51]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann fór m.a. yfir hér sögu jarðgangagerðar og gjaldtökuhugmyndir. Við ræddum það hér undir fyrstu ræðu minni um þetta mál, ég og kollegi hv. þingmanns, hv. þm. Karl Gauti Hjaltason, hvort við værum nógu stórhuga þegar kæmi að samgönguframkvæmdum hér á landi, ekki síst í seinni tíð. Mig langaði að spyrja hv. þingmann sem þingmann Reykvíkinga hvort við séum, sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu, nógu stórhuga. Ættum við til að mynda ekki að vera að hugsa um lausnir hér á höfuðborgarsvæðinu meira í formi ganga t.d., gangagerðar? Það væri áhugavert að heyra hvað hv. þingmanni finnst um þetta.