samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað táknrænt fyrir smæð hugsunar okkar í samgöngumálum í Reykjavík og á Stór-Reykjavíkursvæðinu, höfuðborgarsvæðinu, að göngin séu öll eiginlega fyrir gangandi vegfarendur. Ég var að ræða við mann um daginn sem var einmitt að lýsa því að hann hefði verið í — ég man ekki í hvaða bæ það var, hvort það hafi verið í Noregi, en honum sýndist sem svo að þessi bær væri sambærileg rekstrareining og við værum að eiga við hérna í Reykjavík og málin væru þar bara leyst með þremur, fjórum göngum hér og þar sem léttu verulega á umferðinni á yfirborðinu. Ég er hjartanlega sammála því og úr því sem komið er, fyrst álagið á samgöngukerfið er svona mikið, þá þurfum við sannarlega að fara að hugsa þetta í einhverjum raunverulegum lausnum sem raunverulega laga málin en ekki óraunhæfum lausnum annars vegar eða bara svona smáskömmtum hins vegar.