157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:53]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Af því að hann minnist á að göng hér á svæðinu væru öll fyrir gangandi vegfarendur þá fór ég sömuleiðis yfir það í ræðu minni að það vakti athygli mína varðandi umfjöllun og úttekt á fyrirhuguðum framkvæmdum við Sundabraut að þar var sérstaklega fjallað um þýðingu þess að Sundabrautin gæti verið fyrir gangandi vegfarendur. Ég sá einhverja dreifingu á viðhorfi til þessa tiltekna atriðis og þar sýndist mér að landsbyggðarfólk væri sérstaklega hrifið af því að gangandi vegfarendur gætu farið um Sundabraut. Það vakti athygli mína og furðu.

En af því að hv. þingmaður talar um raunverulegar lausnir sem raunverulega laga hlutina og talaði í ræðu sinni um stöðnun í samgöngubótum á höfuðborgarsvæðinu þá langar mig að spyrja bara svona frekar almennt hvernig hv. þingmaður sér fyrir sér innspýtingu í þessum málum. Hvað myndi hann vilja sjá sett í forgang og hvernig, svona í stuttu máli?