157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:12]
Horfa

Árni Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir fyrirspurnina og andsvarið. Ég held að ég geti tekið undir og samsinnt flestu af því sem kom fram í máli hv. þingmanns. Það er auðvitað alveg rétt að tæknin er eitthvað sem við þurfum klárlega að velta fyrir okkur þegar kemur að þessum málum. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður nefndi að auðvitað getur þetta líka verið til að flækja eða, ef maður orðar það þannig, að fjölga bílum. Hv. þingmaður nefndi t.d. að það væru dæmi um slíkt erlendis frá því þegar leigubílum fjölgaði þegar Uber kom inn á markað o.s.frv.

Það sem er kannski ágætt að hafa líka á bak við eyrað er að á þeim tíma sem við erum að tala um, frá því að þessar pælingar fóru af stað sem ég var að rekja hérna í minni ræðu, kannski árið 2010, hefur notendum á höfuðborgarsvæðinu, sem eru ferðamenn, fjölgað mjög verulega. Nú verð ég að játa að ég hef ekki þær tölur alveg á hraðbergi en það lætur nærri að þegar það eru tvær milljónir ferðamanna á ári hér á landi þá er það auðvitað gríðarleg aukning. Það er talað mikið um álag á landsbyggðinni, réttilega, og vegakerfið þar en auðvitað eru líka fleiri keyrandi bílar í bænum. Það er að mörgu að huga í þessu.

Svo ég komi mér að því að svara fyrirspurn hv. þingmanns um tímalínur þá hef ég kannski, eins og ég rakti í ræðu minni, verulegar áhyggjur af þessu. Ef maður leyfir sér aðeins að reikna með dálítið grófum hætti þá er það þannig að ef þú ætlar að framkvæma fyrir 311 milljarða á 14 árum þá lætur nærri að þetta séu kannski 65–70 milljónir á dag, og þá er ég að tala um hvern einasta dag næstu 14 árin. Það er svakalegur framkvæmdaþungi og ég held að það sé eiginlega alveg ljóst að þetta sé þannig upphæð og umfang að það muni ekki nást. Aftur, þetta er til endurskoðunar og auðvitað er nýbúið að endurskoða sáttmálann og hálfgrátlegt að þurfa að gera það enn einu sinni. En tímalínan hlýtur að vera eitthvað sem kemur til skoðunar þar.