157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:14]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það var áhugavert að heyra í fyrra andsvari hugmyndir um annars konar ferðamáta en við eigum kannski að venjast. Tækninni fleygir fram í þessu, eins og með sjálfkeyrandi bílum og svoleiðis. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í hefðbundnari ferðamáta, vegina og bílana, og kannski svona grundvallaratriðin í þessu, sem lýtur auðvitað að öryggi á vegum, og líka því sem hefur verið nefnt hérna í andsvari við mig fyrr í dag, um flóttaleiðir í borginni. Ég hygg nú að hv. þingmaður búi á Seltjarnarnesinu, sem er lítið og lágt á ystu nöf Reykjavíkur, og er þingmaður fyrir Suðvesturkjördæmið. Það væri fróðlegt að heyra hans sýn og hvaða afstöðu hann hefur til samgangna með tilliti til öryggis- og flóttaleiða, bæði vegaöryggis en líka öryggis íbúanna, þ.e. aðkomu sjúkrabíla, slökkviliðs og svoleiðis. Við höfum tekið eftir að slökkviliðið hefur gert athugasemdir við þrengingar og tímabundnar lokanir á vegum, sérstaklega með tilliti til íbúa vestast í Reykjavík, á Seltjarnarnesinu. Það væri fróðlegt að heyra hvaða framtíðarsýn hv. þingmaður hefur fyrir vegasamgöngur og samgöngur almennt í Reykjavík með tilliti til þessara þátta og frá sjónarhóli þeirra sem búa vestast í borginni út af þessum skaga sem Reykjavík svo sannarlega er og við breytum nú ekki svo auðveldlega.