samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrirspurnina. Það er rétt sem þar kom fram, að ég bý á Seltjarnarnesi. Þótt ég hafni nú að vísu lýsingu hv. þingmanns á því ágæta sveitarfélagi þá er það auðvitað alveg rétt og hv. þingmaður er kannski að koma aðeins inn á umræðu sem skiptir miklu máli, sem er öryggismál. Hv. þingmaður nefndi þetta kannski í tvenns konar samhengi. Almennt út úr borginni, ef það þyrfti að tæma borgina hratt — það er eitthvað sem maður hefur áhyggjur af. Ekki tekst okkur nú að komast hratt á milli seinni partinn eða á morgnana. Það vekur upp þá spurningu hvernig færi ef allir þyrftu að fara hratt. Það blasir við að það er áhyggjuefni. Í því samhengi má nefna að, eins og mörgum, þá brá manni svolítið núna síðastliðinn vetur þegar það fóru að birtast myndir af fyrirhugaðri umferðarhönnun eða vegahönnun á Suðurlandsbrautinni. Ég er að vísa í einhverjar tölvugerðar hönnunarmyndir sem voru birtar þar sem til stóð að borgarlínan fyrirhugaða ætti að vera í miðjunni en svo kom ein akrein í sitt hvora átt, sitt hvorum megin fyrir bílana. Þetta var eitthvað sem margir gagnrýndu og má auðvitað líka skoða akkúrat með þessum gleraugum sem hv. þingmaður nefnir: Hvað með öryggismál? Það þarf nú kannski ekki mikið að gerast á umferðarþungum morgni til að stoppa flæðið dálítið ef það er bara ein akrein, hvað þá ef mikið liggur við og margir þurfa að fara fram hjá. Ég tek undir með hv. þingmanni: Þetta eru atriði sem þarf auðvitað að hafa í huga í þessum málum.