samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það var komið inn á eitt og annað. Kannski bara til að klára aðeins með þessi öryggismál og svona hvernig þessir hlutir geta þurft að flæða á milli þá er kannski allt í lagi að halda því til haga, af því að ég er nú búsettur á Seltjarnarnesi eins og fram kom, að það hefur þetta verið miður, og ég ætla að vona að þetta sé vandamál sem er að baki núna, að sjá hversu illa samstarfið við Reykjavíkurborg gekk þegar kom að því að liðka fyrir umferð frá Seltjarnarnesi og þar á milli. Um þetta hafa verið gerð mörg samkomulög, ég ætla ekki að fara að rekja þá sögu alla hér, en þar reynir á að Reykjavíkurborg sýni liðleika. Bara svona einfalda hluti eins og samráð skortir mjög oft mjög upp á en ég vona að það horfi allt til betri vegar.
En hv. þingmaður nefndi hér mjög athyglisvert dæmi sem er Fossvogsbrúin. Það er alveg rétt og ég get tekið undir margt af því sem hér kom fram og maður hefur verulegar áhyggjur af kostnaðarþróuninni í því. Ef ég man rétt þá sá maður fyrstu tölur eitthvað í nágrenni við 2 milljarða fyrir þessa brú en eins og þingmaðurinn nefndi réttilega er þetta komið í rúmlega átta milljarða og örugglega ekki útséð með allan kostnað í því. Það er líka alveg rétt að auðvitað er það umhugsunarefni að þetta er fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur, ef ég skil rétt. Er þetta það sem við þurfum núna fyrir þessa peninga? Ég ætla að leyfa mér að taka undir áhyggjur þingmannsins að þessu leyti. Við erum að kasta mjög miklum peningum í eitthvað sem er ekki að fara að leysa þá hnúta sem þarf klárlega að leysa á höfuðborgarsvæðinu.