samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Höldum aðeins áfram varðandi væntingastjórnun og réttmætar væntingar. Þessi samgönguáætlun byggir auðvitað mjög á hugmyndinni um innviðafélag. Ég velti því fyrir mér hvaða væntingar ríkisstjórnin er búin að senda út í samfélagið með þessu innviðafélagi því það er þannig, ef ég skil málið rétt, að þetta félag, sem verður þá C-hluta félag með eitt hlutabréf og er þar af leiðandi að fullu í eigu ríkisins, hefur þó söluheimildir úr sjálfu sér. En fjármögnunaraðilinn, sá sem ætlar að innheimta veggjöldin sem er einn skatturinn enn á bifreiðaeigendur … Ég sé ekki — og óska eftir því að hv. þingmaður bendi mér á það ef hann væri búinn að finna út úr því — nein tímamörk á því hvenær þeirri gjaldheimtu lýkur því þetta er ekkert líkt hugmyndafræðinni sem var í kringum Spöl þar sem þjóðin vissi að á ákveðnum tímapunkti myndi gjaldheimta hætta og þjóðin ætti mannvirkið.