samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir fína ræðu. Hann var með góða samlíkingu við það sem við erum að ræða hérna í dag. Hann talaði aðeins um farsældarlögin og síðan það sem við erum að ræða hér, samgönguáætlunina. Hann fór aðeins yfir yfirlýsingarnar og hvað það er mikilvægt að stilla væntingum í hóf, ekki vera með innihaldslausar yfirlýsingar eins og t.d. að ræsa vélar, um fullfjármagnaða samgönguáætlun, byrja að bora og þar fram eftir götunum. Síðan minntist hann einnig á að það væri ekki vænlegt að skattleggja hér allt í drep. Ég get tekið undir það fullum fetum.
Það var mjög gott sem þingmaðurinn kom inn á varðandi yfirlýsingarnar og væntingastjórnun. Nú vitum við að í síðustu samgönguáætlun var lofað Fjarðarheiðargöngum. Það er búið að brjóta það. Nú eru önnur göng komin efst á listann sem eru, ég ætla ekki að gera lítið úr, mjög mikilvæg. En það er búið að svíkja loforð varðandi hin göngin. Og aftur varðandi yfirlýsingar. Nú hefur hæstv. innviðaráðherra ekki verið spar á að lýsa því yfir að það verði byrjað að bora, þá er ég ekki að tala um að leggja vegi heldur að byrja að bora Fljótagöng á næsta ári, 2027. Nú liggur líka fyrir að það verður erfitt að koma þessum göngum inn í innviðafélag. Mig langar að spyrja þingmanninn: Telur hann að þessar áætlanir ráðherrans standist, að það verði byrjað að bora Fljótagöng árið 2027?