samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðisræðu. Það sem mig langaði til að fjalla um og eiga orðastað við hv. þingmann um er í raun og veru lýðræðið. Við erum hér með samgönguáætlun þar sem er búið að upplista verkefni sem á að fara í og nú liggur fyrir að þetta innviðafélag á að geta valið sér verkefni eftir því hvað er stjörnumerkt í samgönguáætlun. Því langaði mig að spyrja hv. þingmann: Ef hann er hér í kosningabaráttu, segjum fyrir næstu kosningar, og það er mikill áhugi hjá almenningi á máli sem hann er með sem varðar Sundabraut og við gefum okkur að hann lofi því að Sundabraut verði forgangsmál hjá Sjálfstæðisflokknum ef þau komist til valda, það verði þá fyrsta mál á dagskrá, en miðað við hvernig þessi hæstv. ríkisstjórn er að stilla málunum upp er verið að fjarlægja valdið frá kjörnum fulltrúum og þar með fólkinu í landinu — fyrsta spurningin er kannski: Finnst hv. þingmanni þetta boðlegt? Sér hann lausnina á því hvernig hann geti staðið við það loforð sem hann gefur kjósendum ef þetta fer óbreytt í gegn? Og áttar hv. þingmaður sig á því, því að þetta hefur komið fram í mörgum ræðum, af hverju þessi ríkisstjórn vill ekki reyna að haga málum þannig að vissulega huga að sjálfstæði innviðafélagsins en þó þannig að það sé Alþingi Íslendinga sem eigi alltaf lokaorðið um forgangsröðun og það geti þá valið að fara í framkvæmdir án innviðafélagsins ef innviðafélagið neitar að taka þetta?