samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og já, ég er sammála, við erum sammála. Það sem mig langaði að gera í framhaldinu er að upplýsa þá sem ekki vita það hvernig þessi hæstv. ríkisstjórn hyggst hafa stjórn í þessu innviðafélagi. Ég mun kannski fara aðeins yfir það í ræðu á eftir hvernig þessi ríkisstjórn er markvisst að færa valdið á margan hátt frá kjörnum fulltrúum til embættismanna. Það er alveg á margan hátt sem það er gert. En núna er það þannig að atvinnuvegaráðuneytið á að skipa tvo, forsætisráðuneytið einn og fjármálaráðuneytið tvo. Og ég segi ráðuneytið því að mér heyrist á öllu að þetta verði einhvers konar, með fullri virðingu fyrir embættismönnum, andlitslaus embættismannastjórn. Er það þá ekki í raun og veru framhald á því sem við erum að ræða, að það sé bara skref fyrir skref verið að taka smá af lýðræðinu?