157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:49]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir seinna andsvar og fyrir að segja frá því hvernig velja eigi stjórnina, sem fer til einhvers fólks sem er ekki pólitískt kjörið eða kjörið af fólkinu í landinu. Það virðist vera einhvers konar árátta eða blæti ríkisstjórnarinnar að framselja vald og um leið ábyrgð, firra sig ábyrgð á því að þurfa að taka ákvarðanir um það hvað eigi að gera: Þetta erum ekki við, það er bara einhver svona stjórn sem ákveður þetta. Ég held að fólkið í landinu vilji geta treyst því að þau sem eru kosnir fyrir þeirra hönd á þing og síðan mynda ríkisstjórn standi við það sem þau segja og geti ekki falið sig á bak við andlitslausa stjórn. (Forseti hringir.) Þetta er eitt af þessu sem við í stjórnarandstöðunni, að ég held allir flokkar, höfum bent á að er líka hættan við þessa ESB-umræðu. Þess vegna er mikilvægt að menn átti sig á því að nei í ágúst skiptir miklu máli.