samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Já, við erum greinilega alveg sammála, ég og hv. þingmaður, í þessu máli og ég hlakka til að skoða betur þessa tillögu sem ég mun án efa samþykkja og vera sammála af því að mér þykir við vera aðeins á gráu svæði varðandi það hvert fjárveitingavaldið er komið. Það á heima hér á Alþingi en þegar við erum að alltaf einhvern veginn að gefa frá okkur smá og smá þá auðvitað taka aðrir meira vald en þeir hafa. Í því samhengi er vert að benda á að ég held að það megi færa fyrir því rök að samningurinn við Betri samgöngur sé meira að segja brostinn því að þetta er ekki fjármagnað sem ríkið ætlar að koma með og því þarf auðvitað að eiga sér stað aftur samtal við ríkið. Þess vegna velti ég fyrir mér þessari tillögu og hvort hv. þingmaður geti farið betur yfir þetta með mér: Er þá tillagan í raun og veru bara að færa valdið aðeins aftur til Alþingis? Skyldi ég hana rétt með það?