157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:05]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og það er gott að hafa beint sjónum að þessari breytingartillögu. Ég heyri að hv. þingmaður ætlar að kafa dýpra ofan í hana og ég sagði nú í ræðu minni hér áðan að það væru margir fletir á þessu máli. Það er svo margt eftir órætt og þetta er bara eitt af því. Hv. þingmaður nefnir að Alþingi hafi fjárveitingavaldið og þess vegna var ég að velta því upp í ræðu minni hvað það feli í sér. Hvernig stöndum við undir þeirri stóru og miklu ábyrgð? Áttar fólk sig hreinlega á þessu? Og af því að hv. þingmaður nefnir fjármögnunina þá er það ein af stóru spurningunum sem er ósvarað varðandi þennan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þess vegna fagna ég því sérstaklega og gerði það reyndar í fyrstu ræðu minni, af því að ég var sérstaklega í þessari ræðu að beina sjónum að breytingartillögunni. Vel að merkja, af því að hv. þingmaður spurði að því, er niðurlag breytingartillögunnar það að formleg aðkoma Alþingis sé tryggð. Það er bara skýrt í þessari tillögu. En ég fagna því að nýr meiri hluti í Reykjavík ætlar að beita sér fyrir endurskoðun þessa verkefnis.