157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:12]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir prýðilega ræðu. Hún kom inn á fjölmargt en það er aðallega eitt sem mig langaði, frú forseti, að spyrja aðeins út í, þ.e. að við erum í raun og veru komin með þrjár vegagerðar í landinu. Við erum með þetta innviðafélag sem er hér í fæðingu, við erum með Betri samgöngur sem hv. þingmaður gerði ágætlega skil og síðan erum við með Vegagerðina, vegagerð ríkisins. Í raun og veru hefur þjóðin ekki beina aðkomu að nema einum af þessum þremur aðilum sem munu sjá um framkvæmdir og uppbyggingu samgöngumannvirkja hér næstu árin. Þetta er nú kannski bara lítil og einföld spurning fyrir hv. þingmann: Er það eðlilegt að mati hv. þingmanns að stærsti hlutinn, stærstu verkefnin, dýrustu verkefnin, séu í raun og veru fjarlægð frá kjósandanum?