samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann spyr hér út í væntingastjórnun ríkisstjórnarinnar og hvort þetta sé trúverðugt og nefnir sérstaklega Fljótagöng. Nei, svo ég svari nú spurningunni beint, þetta er ekki trúverðugt. Það er ekki trúverðugt að koma hér fram með mikil gífuryrði og tala um að við ætlum að ræsa vélarnar. Ég held að það hafi mátt skilja það þannig með Fljótagöng að þar eigi að ræsa vélar hratt og örugglega og fólk sjái þar borað í gegnum fjöll á undraskömmum tíma. Algerlega óhannað verkefni, óhönnuð framkvæmd. Í staðinn vorum við með fullhannað verkefni á Austfjörðum, Fjarðarheiðargöng. Ég held að ég fari rétt með að við séum búin að setja hátt í 700 milljónir í undirbúning á því verkefni sem fellur núna nánast dautt niður. Það er ekki góð meðferð á fjármunum.
Ég tek undir með hv. þingmanni að ekki vantar stóru orðin hjá ríkisstjórninni þegar hún boðar til blaðamannafundar eða tilkynnir um hvernig þau ætli að bæta allt mögulegt og ómögulegt í þessu samfélagi. Við þekkjum það orðið. Það eru orðin gamalkunnug stef og þau eru þreytt. Það eru haldnir blaðamannafundir. Þau stunda hér fyrirsagnapólitík. Það að tala um að ræsa vélarnar minnir mig á þegar ríkisstjórnin, einmitt á blaðamannafundi uppi í Úlfarsárdal, tilkynnti um húsnæðispakkann sinn og að nú skyldi farið í stórfellda uppbyggingu þar á húsnæði. Þá sagði hæstv. innviðaráðherra, sem þá var Inga Sæland: Við munum sjá krana á þessu ári á því svæði. (Forseti hringir.) Ég get bara sagt það strax að það mun enginn krani vera þar á þessu ári og líklega ekki næsta eða þarnæsta og ég dreg mjög í efa að það verði byrjað á Fljótagöngum á næsta ári.