157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:33]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég ætla að leyfa mér að segja, herra forseti, að trúverðugleikinn í þessari væntingapólitík, fyrirsagnapólitík eins og hv. þingmaður orðaði það, var kannski aldrei til staðar hvað varðar þessi stærri verkefni og þá tímalínu sem þar átti að teikna upp. Ég spyr hv. þingmann hvernig hv. þingmaður metur það því að sá sem hér stendur metur það þannig að trúverðugleikinn sé enn þá minni núna þegar við vorum að lesa, eins og hv. þingmaður reyndar vék aðeins að í erindi sínu, að hallinn á ríkisrekstrinum fyrsta ársfjórðunginn sé rétt tæplega 24 milljarðar kr. Er það mat hv. þingmanns að trúverðugleikinn í samgönguáætlun standi styrkari stoðum í dag en hann gerði í gær?