samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er rétt sem hv. þingmaður segir hér að þessi samgönguáætlun er mjög afturhlaðin. Hún er ekki fullfjármögnuð, hvað sem hver heldur fram. Það hafa miklar væntingar verið skapaðar. Við finnum það sérstaklega á íbúum Austfjarða þar sem búið var að setja á dagskrá Fjarðarheiðargöng og nú er búið að blása þau af. Ég skil vel reiði Seyðfirðinga sem búa þannig að það er engin önnur leið út úr firðinum nema sjóleiðina ef þannig aðstæður skapast. Siglfirðingar komast frá Siglufirði ef þannig aðstæður eru. Ég ætla ekki að fara í eitthvað um hverjir eiga rétt á einhverju meiru eða annað slíkt en ég ætlaði bara að ítreka að það er ekki hægt að skilja Austfirði eftir með þeim hætti sem hér á að gera.
Hv. þingmaður nefnir hér sjóvarnir. Ég nefndi þær í ræðu minni vegna þess að ég tel að við höfum ekki beint sjónum okkar nægilega vel að sjóvörnum. Við þekkjum það nú á höfuðborgarsvæðinu þar sem varð mikið tjón á Seltjarnarnesi. Ég held að ágangur sjávar muni aukast mjög í framtíðinni. Þetta er eitthvað sem við getum ekki horft fram hjá vegna þess að ef við fjárfestum ekki tímanlega verður tjónið síðar meir miklu dýrara. Það er ódýrara að verja innviðina áður en þeir skemmast en að greiða reikninginn síðar meir.