157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:42]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir nefnir hér sjóvarnirnar. Eins og ég sagði þá eigum við alls ekki að draga úr fjármagni til sjóvarna, það á frekar að auka það. Til að fólk átti sig á hvaða tölur við erum að tala um, einhver gæti haldið að við værum að tala hér í milljörðum, þá sýna þær núna að fjárveitingar til sjóvarna lækka úr 181 millj. kr. árið 2026 í 144 millj. kr. árið 2030. Þess vegna hafa þau svæði sem ég nefndi hér áðan, eins og t.d. Vík í Mýrdal eða Mýrdalurinn, Grindavík, Reykjanesbær, Suðurnesin og Seltjarnarnes, gagnrýnt það mjög að áætlunin endurspegli ekki þessa staðfestu flóðahættu (Forseti hringir.) sem er og þetta virka landrof og segja að fjárhagsrammi sjóvarna sé of þröngur. Ég næ ekki að svara varðandi farsímanetið en það er auðvitað algerlega til skammar hvernig staðan er á því. Ég get nefnt það sjálf að ég keyri daglega frá Hveragerði til höfuðborgarinnar og dett úr sambandi á þeirri fjölförnu leið. (Forseti hringir.) Hvernig má það vera á 21. öldinni?