157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég get tekið undir þetta. Ég vona að þau fari að láta verkin tala svo lengi sem það eru ekki enn frekari skattahækkanir því það er nú kannski helst það sem þessi ríkisstjórn hefur afrekað, að gera allt sem hún lofaði að gera ekki. Hún lofaði að hækka ekki skatta. Hún hækkar skatta. Hún lofaði að taka til í ríkisfjármálum. Hún gerir það ekki. Nú á að taka til á næsta ári og hvað kemur í ljós? Afleiðingar gjörða þessarar ríkisstjórnar eru með þeim hætti að staðan er orðin mjög slæm. Og það að halda því fram að þessi samgönguáætlun sé fullfjármögnuð er, eins og hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir benti á, auðvitað ekki rétt. þannig að ég spyr hana í seinna andsvari: Þurfum við ekki að komast á sömu blaðsíðu til að geta vitað hvert við eigum að fara og að meiri hlutinn átti sig á að þau eru ekki með fullfjármagnaða samgönguáætlun?