157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:50]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvarið. Já, ég ætla að vona að enginn hafi misskilið orð mín þegar ég hvatti þau til að láta verk sín tala, að ég sé að hvetja þau til þeirra voðaverka sem þau hafa verið í síðustu mánuði, sem hafa ekki verið eiginlega neitt annað en íþyngjandi aðgerðir og ákvarðanir fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Við höfum ekki séð neitt annað frá þessari ríkisstjórn annað en skattahækkanir ofan á skattahækkanir. Það er kannski þess vegna sem útgjöld eru að hækka hraðar en tekjur hjá ríkinu því að tekjur ríkisins hljóta að minnka vegna þess að þau leggja stein í götu atvinnulífsins. Við höfum margoft rætt það hér. Við höfum tekið til varna fyrir atvinnulífið vegna endalausra skattahækkana og við sáum það um áramótin. Hv. þingmaður spurði mig í fyrra andsvari sínu um alla þessa skatta sem tengdir eru umferð og bílum sem er búið að leggja núna á almenning. Þessir samgönguskattar taka engan enda. Þessi árátta eða þráhyggja þessarar ríkisstjórnar að vera í einhverjum árásum gagnvart fjölskyldubílnum — við höfum auðvitað upplifað þetta allt í Reykjavík. Nú sitjum við uppi með það að borgarstjóri Reykjavíkur til margra ára, sem hefur valdið umferðartöfunum og umferðarkaosinu á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjavík, er sestur á þing, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, og við sjáum auðvitað þessa hugmyndafræði hér í þessari vinnu. Það á með öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir það að fólk geti keyrt á fjölskyldubílnum á milli staða eða til og frá vinnu. Ég hef af þessu miklar áhyggjur.

Ég ætla hér í blálokin (Forseti hringir.) að segja að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra margítrekaði hér og var mjög skýr í óundirbúnum fyrirspurnum í morgun og fullyrti að á næsta ári yrðu hallalaus fjárlög. (Forseti hringir.) Ég segi nú bara: Betur má ef duga skal.